24. desember. Aftansöngur kl. 18:00
Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju leiðir hátíðarsöng undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista. Einsöngvari Birna Rúnarsdóttir. Steinar Matthías Kristinsson leikur á trompet.

24. desember. Miðnæturmessa við kertaljós kl. 23:00
Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Kór Árbæjarkirkju leiðir hátíðarsöng undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista. Steinar Matthías Kristinsson leikur á trompet.

25. desember Jóladagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00
Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Kór Árbæjarkirkju leiðir hátíðarsöng. Organisti Stefán H. Kristinsson.