Guðsþjónusta kl. 11. Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts kemur í heimsókn og leikur nokkur lög. Stjórnandi er Hannah O’Connor. Kór Árbæjarkirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Andreu Önnu Arnardóttur, Thelmu Rósar Arnardóttur og Sigurðar Óla Karlssonar. Kaffi og spjall eftir stundina.