Unglingarnir í æskulýðsfélaginu saKÚL Árbæjarkirkju standa fyrir biblíumaraþoni þar sem þau ætla að lesa úr biblíunni í hálfan sólarhring. Þau byrja að lesa kl. 21.00 föstudaginn 10. nóvember og ætla að skiptast á að lesa alla nóttina fram til laugardagsins 11. nóvember kl. 09.00. Þau ætla að bjóða fólki að heita á þau 50- 100 kr á hverja lestna klukkustund. Hægt verður að fylgjast með lestrinum á facebook síðu Árbæjarkirkju þar sem steymt verður frá lestrinum. Tilgangur biblíumaraþonsins er að safna áheitum til skyrktar ferð æskulýðsfélagsins til Ungverjalands haustið 2024. Tekið er við áheitum HÉR.