Allra heilagra messa kl. 11. Við minnumst látinna ástvina með því að tendra ljós í minningu þeirra og lesin verða upp nöfn þeirra sem jarðsungin hafa verið frá Árbæjarkirkju síðasta árið. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Andreu Önnu Arnarsdóttur og Valgeirs Snæs Lillendahl. Kaffi og spjall eftir stundina.