Guðsþjónusta kl. 11 með þátttöku fermingarbarna á septembernámskeiði. Foreldrafundur verður síðan í beinu framhaldi af messunni. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar organista. sr. Þór Hauksson, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og Ingunn Björk Jónsdóttir djákni prédika og þjóna fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjón Andreu Önnu Arnarsdóttur, Thelmu Rósar Arnarsdóttur og Sigurðar Óla Karlssonar.