Gönguguðsþjónusta kl. 11:00. Gengið er frá Árbæjarkirkju um Elliðaárdalinn, stífluhringinn og staldrað við á nokkrum stöðum í söng og bæn. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar og félagar úr kór Árbæjarkirkju undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár leiða sönginn. Á eftir er kaffi og spjall í kirkjunni.