Guðsþjónustua kl. 11:00 Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts kemur í heimsókn og leikur nokkur lög undir stjórn Sólveigar Morávek. Kór Árbæjarkirkju leiðir safnaðarsönginn undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár organista og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn  er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Andreu Önnu Arnardóttur, Thelmu Rósar Arnardóttur og Sigurðar Óla Karlssonar. Það er síðasti hefðbundi sunnudagaskóli vetrarins en farið verður í vorferðalag 7. maí.