Sunnudagaskólinn kl.11.00 í umsjá Andreu Önnu Arnarsdóttur, Thelmu Rósar Arnarsdóttur og Sigurðar Óla Karlssonar.  

Frumbyggjamessa kl.17.00 sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari.  (Hugmyndin að baki frumbyggjamessunni er að kalla saman einstkalinga sem ólust upp á frumbýlisárum Árbæjarsafnaðar og eiga góða stund saman í tali og tónum.) Félagar úr kirkjukórnum, Bjarni Ara og Einar Clausen syngja.  Organisti Krisztina Kalló Szkenár. Eftri athöfn í kirkjunni er kirkjugestum boðið að þiggja léttar veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar.