þriðjudaginn 28. mars verður boðið upp á tónlistarnámskeiðið Krílasálma á foreldramorgnum Árbæjarkirkju. Krílasálmar eru tónlistarnámskeið fyrir börn á fyrsta ári og foreldra þeirra. Þar sem sungið, ruggað, leikið og dansað er með börnunum. Námskeiði er í umsjón Guðnýjar Einarsdóttur tónlistarmanns og hefst kl. 10:30. 

Foreldramorgnar eru á þriðjudögum kl. 10:00 – 12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. Boðið upp á kaffi og léttan morgunverð.