Guðsþjónusta kl. 11. Í tilefni Konudagsins verða sungnir sálmar þar sem annað hvort lag eða texti er eftir konur. Kór Árbæjarkirkju leiðir sönginn undir stjórn Krisztinu Kalló Sklenár organista. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Andreu Önnu Arnarsdóttur, Thelmu Rósar Arnarsdóttur og Sigurðar Óla Karlssonar. Kaffi og spjall eftir stundina.