Foreldramorgnar hefjast að loknu jólafrí þriðjudaginn 10. janúar og eru eins og áður alla þriðjudaga milli 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. Foreldramorgnar eru opið hús fyrir foreldra og börn og eru öllum opnir. Þar gefst tækifæri til að spjalla saman og deila reynslu sinni.Á foreldramorgnum Árbæjarkirkju býðst foreldrum ungbarna sem eru í fæðingarorlofi eða heimavinnandi einnig að sækja ókeypis fræðsluerindi sem tengjast ummönnun ungra barna. Kaffi og léttar veitingar.