Tólf spora starfið hefst nú að nýju og er að þessu sinni  16 vikna prógramm sem byrjar 11. janúar og lýkur í byrjun maí. Fundirnir eru vikulega á miðvikudögum kl. 19:00-21:00. Fyrst eru tveir kynningarfundir þar sem fólk hefur tækifæri til að kynna sér prógrammið. Það eru allir velkomnir á þessa opnu fundi og ekki þörf á að skrá sig fyrirfram. Fyrsti opni fundurinn verður miðvikudaginn 11. janúar kl. 19:00. Næsti opni fundurinn verður 18. janúar  en á þriðja fundi 25. janúar verður hópunum lokað og reiknað með að þau sem mæta þá ætli að vera með fram á vorið. Athugið að best er að mæta á báða opnu fundina. Allar nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðunni undir flipanum: Tólf spor