Jólaleg helgistund á léttum og ljúfum nótum kl. 11. Kór Árbæjarkirkju syngur jólasöngva úr ýmsum áttum undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár. Jólasaga og jólaíhuganir lesnar á milli söngva og Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir flytur hugvekju. Kaffi og spjall eftir stundina.