Árbæjarkirkja bíður foreldrum ungbarna sem eru í fæðingarorlofi eða heimavinnandi að sækja ókeypis fræðsluerindi sem tengjast ummönnun ungra barna. Þriðjudaginn 13. desember kl. 10-12 mun Sigríður Elísabet Árnadóttir, hjúkrunarfræðingur, verða með fræðslu og veita ráðgjöf um næringu ungbarna.
Foreldramorgnar eru alla þriðjudaga kl. 10:00 – 12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. Foreldramorgnar eru opið hús fyrir foreldra og börn þar sem þeim gefst kostur á að hittast og spjalla, læra hvert af öðru. Allir nýbakaðir foreldrar velkomnir með krílin sín. Boðið upp á kaffi og léttar veitingar.