Þriðjudaginn 6. desember verður kynning á starfssemi Austurmiðstöðvar á foreldramorgnum Árbæjarkirkju. Ragnar Harðarson og Trausti Jónsson kynna starfsemi í Austurmiðstöð sem sinnir fjölbreyttri þjónustu við barnafjölskyldur í Árbæ og Norðlingaholti svo sem sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla og frístundaráðgjöf. Foreldramorgnar eru alla þriðjudaga kl. 10:00-12:00 í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. Fyrirlesturinn hefst kl. 10:30.