Sunnudagaskólinn kl. 11:00  

Jólaleiksýningin Langleggur og Skjóða. Systkinin Langleggur og Skjóða heimsækja okkur með skemmtilega jólasögu. Þau eru systkini jólasveinana og kunna margar sögur úr Grýluhelli. Mörg börn þekkja Skjóðu úr Jóladagatali Hurðaskellis og Skjóðu.

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 

  • 35 ára vígsluafmæli Árbæjarkirkju  
  • Biskup Íslands frú. Agnes M. Sigurðardóttir heimsækir söfnuðinn og prédikar.sr. Þór Hauksson og Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjóna fyrir altari. 
  • Matthías Stefánsson spilar á fiðlu 
  • Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) syngur ásamt kór Árbæjarkirkju.Kór og organisti Krisztina Kalló Szklenár. 
  •  Kvenfélag Árbæjarsóknar afhendir söfnuðinum nýja hökla að gjöf 
  • Eftir athöfn verður hátíðarkaffi og Líknarsjóðshappdrætti kvenfélagsins