Opið hús, félagsstarf fullorðina hefst miðvikudaginn 7. september að lokinni kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12:00. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni. Opið hús er í safnaðarheimili Árbæjarkirkju alla miðvikudaga frá kl. 13 til 16 þar sem fólk á öllum aldri kemur saman. Í Opna húsinu er leitast við að bjóða upp á létta og fjölbreytta dagskrá til að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Stólaleikfimi hefur notið mikilla vinsælda og er fastur liður í Opna húsinu.