Barnastarf Árbæjarkirkju hefst á ný þriðjudaginn 6. september. Tímasetningar eru eftirfarandi:   

STN (1. bekkur) þriðjudagar kl. 14

STN (2 og 3 bekkur) þriðjudagur kl. 15  

TTT (4-7 bekkur) þriðjudagar kl. 16  

Skráning fer fram á heimasíðu Árbæjarkirkju á slóðinni: https://www.arbaejarkirkja.is Dagskrá vetrarins er fjölbreytt að venju þar sem kristileg gildi, leikir og gleði fara saman. Börnin læra auk þess algengustu biblíusögur og gera hjálparstarfsverkefni. Barnastarf Árbæjarkirkju er foreldrum að kostnaðarlausu.