Árbæjarkirkja bíður foreldrum ungbarna sem eru í fæðingarorlofi eða heimavinnandi að sækja ókeypis fræðsluerindi sem tengjast ummönnun ungra barna.
Þriðjudaginn 29 mars kl. 10:20 verður boðið upp á skyndihjálp ungbarna á foreldramorgnum. Námskeiðið er haldið í safnaðarheimili Árbæjarkirkju. Kennd verður endurlífgun, hjartahnoð og blástursaðferð, losun aðskotahluta úr hálsi og viðbrögð við hitakrampa hjá börnum.
Námskeiðið er á vegum Rauða Krossins og er ókeypis.

Auk þess eru foreldramorgnar í Norðlingaholti á miðvikudögum kl. 9:30-11:30 í félagsmiðstöðinni Holtinu Norðlingaholti (Gamla Mesthúsið)