Vegna breytinga á samkomutakmörkunum er ljóst að okkur í kirkjunni er ekkert að vanbúnaði að opna kirkjuna upp á gátt. Barna, unglinga og fullorðinsstarfið, guðsþjónsta sunnudagsins og sunnudagaskólinn opna dyrnar á ný og við fögnum því. Auðvitað munum við í kirkjunni halda uppi sóttvörnum eins og okkur er unnt og hvetjum alla til þess sama hvort heldur í kirkjustarfinu eða í okkar daglega lífi. Hlökkum til að sjá ykkur!