Fyrsta sunnudag aðventu 28. nóvember á Kirkjudegi Árbæjarsafnaðar hefur Líknarsjóður Kvenfélags Árbæjarsafnaðar allt frá stofnun safnaðarins verið með skyndihappdrætti. Ágóði happdrættisins hefur farið óskiptur í að styrkja einstaklinga og fjölskyldur um jólin og þegar því er að skipta allt árið. Áföll gera ekki boð á undan sér, ekki frekar en heimsfaraldur. Í ár sem og í fyrra hefur ekki verið hægt að halda úti þessum mikilvæga lið í safnaðarstarfinu. Neyð einstaklinga og fjölskyldna fer ekki í frí og spyr ekki um stað og stund. Í ljósi aðstæðna/samkomutakmarkana leita Kvenfélagskonur til þín með framlag í sjóðinn.
Reiknisnúmerið er:113-15-370611 Knt:430282-0349. Líknarsjóður Kvenfélagsins.