Sóknarnefnd Árbæjarkirkju óskar eftir kirkjuverði í 50% starf, unnið er aðra hverja viku.

Óskað er eftir ábyrgum, jákvæðum, samviskusömum einstakling sem á auðvelt með að vinna með öðrum og hefur áhuga á starfi kirkjunnar.

Rík áhersla er lögð á trúmennsku í starfi og metnað í að takast á við margvísleg verkefni.

Umsækjendur sendi inn ferilskrá og kynningarbréf til og með 15. nóvember á arbaejarkirkja@arbaejarkirkja.is.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar hjá sóknarnefnd í síma 787-2700 eða með því að senda tölvupóst á ofangreint netfang.