Allra heilagra messa kl. 11. Guðsþjónustan er sérstaklega helguð minningu látinna og öllum gefst kostur að tendra á kerti til að minnast sinna ástvina. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló Szklanér organista og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Andreu Önnu Arnarsdóttur og Thelmu Rósar Arnarsdóttur. Kaffi og spjall eftir stundina.