Gönguguðsþjónusta kl. 11.  Gengið er frá Árbæjarkirkju um Elliðaárdalinn, stífluhringinn og staldrað við á nokkrum stöðum í söng og bæn. Allir eru velkomnir í gönguna og gengið á hraða sem flestum hentar.  Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar og félagar úr kór Árbæjarkirkju leiða sönginn undir stjórn Krisztinu Kalló Szklanér organista. Á eftir er messukaffi í kirkjunni.