Skráning í fermingarfræðslu Árbæjarkirkju fer fram á heimasíðu kirkjunnar og hefst  þriðjudaginn 1. júní 2021 kl. 12:00.

Boðið er upp á tvo valkosti á fermingafræðslunámskeiðunum. Annars vegar námskeið í ágúst dagana 16.-19. ágúst eða hinsvegar námskeið í september dagana 23.-26. september.

Allar nánari upplýsingar um fermingardaga og tilhögun fermingarfræðslunnar er að finna á heimasíðu Árbæjarkirkju undir flokknum fermingar.