Samningsbundin stytting vinnuvikunnar, úr 40 tímum í 36
tíma, tók gildi hjá KGRP eins og mörgum öðrum fyrirtækjum í
ársbyrjun 2021.
Frá og með föstudeginum 9. apríl munu starfsmenn KGRP ljúka
vinnudegi kl. 12:00 á hádegi og verður það fyrirkomulag áfram
á föstudögum.
Þetta fyrirkomulag hefur lítil sem engin áhrif á útfarartímana
sem verða áfram kl. 11:00; 13:00 og 15:00 alla virka daga,
einnig á föstudögum.
Það sem breytist á föstudögum er þetta:
 Ekki verður hægt að bóka útför í athafnarýmum hjá KGRP í
Fossvogi.
 Ekki verður tekið á móti kistum til jarðsetningar á
föstudögum.
Tekið verður á móti duftkerum til jarðsetningar til 11:30 á
föstudagsmorgnum og athafnarými verða opin fyrir
kistulagningarbænir til kl. 11:00.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 585 2700 og á slóðinni:
kirkjugardar.is/fostudagu