Guðsþjónusta kl.11:00. Skólahljómsveit Árbæjar-og Breiðholts undir stjórn Snorra Heimissonar kemur í heimsókn og flytur nokkur lög. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló og sr. Petrína Mjöll predikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu  í umsjá Önnu Sigríðar og Erlu Mistar. Kaffisopi og spjall eftir stundina.