Árbæjarkirkja óskar eftir að ráða starfmann í hlutastarf í barna- og unglingastarf kirkjunnar, á þriðjudögum eftir hádegi og á fimmtudagskvöldum. Viðkomandi þarf að hafa reynslu og áhuga á að vinna með börnum og ungmennum ásamt frumkvæði, sjálfstæði og hæfni í mannlegum samskiptum. Tónlistarkunnátta er skilyrði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir berist til:
Árbæjarkirkja
V/Rofabæ
110 Reykjavík
eða á netfangið: ingunn@arbaejarkirkja. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingunn Björk Jónsdóttir í síma 587 2405 eða 662 6601
Umsóknarfrestur er til 23. ágúst n.k.