BanyantreeÁrbæjarkirkja hefur fengið til liðs við sig guðfræðingana Fritz Má Jörgensson og Díönu Ósk Óskarsdóttur en þau munu í samstarfi við Árbæjarkirkju leiða námskeið um flest það er tengist mannlegri tilveru.Banyan tré er tré sem hefur þann einstaka eiginleika að skjóta niður nýjum rótum og mynda þannig nýjan stofn. Þannig getur tréð haldið uppi þyngd laufanna og ávaxta sinna. Tréð getur því verið mjög stórt og myndað sinn eigin skóg sem fjöldi dýra leitar skjóls í. Myndin er valin því þetta fallega tré er svo táknrænt fyrir þann ávöxt sem við vonumst til að námskeiðin okkar beri. Við höfum þá sýn að aukin sjálfsþekking, heilbrigt sjálfsmat og bætt samskipti stuðli að auknum lífsgæðum fyrir hvern og einn. Hver einstaklingur hefur svo áhrif á sitt umhverfi. Rétt eins og Banyan tréð. Námskeiðin eru haldin af guðfræðingunum Díönu Ósk og Fritz Már í samstarfi við Árbæjarkirkju. 
Sporanámskeið:Ert þú forvitin um sporin? Hefur þig langað til að vita hvað átt er við þegar fólk talar um að vinna sporin? Hefur þig langað til þess að fara í sporavinnu en ekki haft kjarkinn eða gefið þér tima? Tólf spora kerfið sem upprunalega varð til í kringum AA samtökin er stórkostleg leið til að hefja skemmtilega en um leið krefjandi vinnu í átt að betri sjálfsþekkingu og þar með betra lífi. Á námskeiðinu verður farið yfir sporin tólf, þau kynnt og skoðuð með verkefnavinnu. Hægt er að nýta sér námskeiðið til þess að vinna með eigið sjálf samhliða því að vinna sporin með trúnaðarmanneskju eða sem stökkpall yfir í áframhaldandi vinnu með trúnaðarmanneskju.Fyrirkomulag námskeiðsins:Sporanámskeiðin fara fram í hópum. Hámark 15 í hverjum hóp. Hópurinn hittist í tvö skipti í 3.klst. í senn með viku millibili. Námskeiðsgögn eru innifalin. Leiðbeinendur eru Díana Ósk og Fritz Már.Sporanámskeið hefst 01.03 2014 en námskeiðið er laugardagana 01. og 08.03 kl. 09:30-12:30Verð á námskeiði:Verð námskeiðs er kr. 8.500.- Til að skrá sig eða fá frekari upplýsingar má hafa samband í síma 783-4321 eða namskeiðin@gmail.comMeðvirkninámskeið:Díana Ósk Óskarsdóttir hefur í mörg ár haldið vinsæl námskeið um meðvirkni, námskeiðið ber heitið Vertu þinn besti vinur.Námskeiðið er hugsað sem stökkpallur inn í bætt lífsgæði. Það samanstendur af fræðslu, hópverkefnum og heimavinnu. Námskeiðið býður upp á sjálfsrýni, þar sem ólíkar birtingarmyndir meðvirkninnar eru skoðaðar, sjálfsvirðing, sjálfsmynd og hversu mikilvæg heilbrigð mörk eru í öllum samskiptum. Þátttakendur fá tækifæri til að þjálfa upp tengsl við eigin tilfinningar. Meðvirkni á sér yfirleitt upphaf í bernsku einstaklings þar sem barn sýnir eðlileg viðbrögð við óeðlilegum aðstæðum. Þeir sem glíma við meðvirkni koma oftar en ekki úr vanvirkum fjölskyldukerfum og að hluta til er meðvirknin varnarviðbrögð. Á námskeiðinu getur fólk lært leiðir til þess að vinna með eigin meðvirkni.Markmiðið er að hjálpa þátttakendum við að komast í betri tengsl við eigin tilfinningar og aðstoða þá við að setja sér og öðrum heilbrigð mörk. Einnig er mikil áhersla á sjálfsvirði hvers og eins.Fyrirkomulag námskeiðsins:Námskeiðin fara fram í 6-8 manna hópum og fara fram með því móti að hópurinn hittist í tvö skipti 4.- 4,5.klst. í senn. Þátttakendur fá námskeiðsgögn og þurfa að gefa sér rými fyrir heimavinnu. Auk þess hittist hópurinn í tvö skipti þá í  ca. 1,5.klst. vikulega eftir námskeiðið. Aðalleiðbeinandi er Díana Ósk og henni til aðstoðar er Fritz Már.Vertu þinn besti vinur hefst 07.03 2014 en námskeiðið er föstudagana 07. og 14.03 kl. 16:30-20:30 og eftirfylgnin er miðvikudagana 19. og 26.03 kl. 20:00-21:30Verð á námskeiði:Verð námskeiðs er kr. 13.900.- Til að skrá sig eða fá frekari upplýsingar má hafa samband í síma 783-4321 eða namskeiðin@gmail.com 

Batanámskeið:

Þetta námskeið er fyrir fólk sem hefur verið að takast á við þætti eins og meðvirkni, fíkn, átröskun, sjálfskaða eða aðra kvilla sem það telur sig vera í bata gagnvart. Markmið námskeiðsins er að skerpa á batanum og skoða hvaða skref má taka til áframhaldandi bata. Margir upplifa stöðnun á ákveðnum tímum batans eða finnst eins og þeir nái ekki að yfirstíga ákveðna þætti. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu þrep batans og yfir batasögu hvers og eins.

 

Fyrirkomulag námskeiðsins:

Batanámskeiðin fara fram í hópum. Hámark 15 í hverjum hóp. Hópurinn hittist í tvö skipti í 3.klst. í senn með viku millibili. Námskeiðsgögn eru innifalin.  Leiðbeinendur eru Díana Ósk og Fritz Már.

Batanámskeiðið hefst 22.03 2014 en námskeiðið er laugardagana 22. og 29.03 kl. 09:30-12:30

Verð á námskeiði:

Verð námskeiðs er kr. 8.500.- Til að skrá sig eða fá frekari upplýsingar má hafa samband í síma 783-4321 eða namskeiðin@gmail.com

 

 

 

Sjálfstyrkingarnámskeið:

Gott sjálfstraust og heilbrigt sjálfsmat hafa mikil áhrif á vellíðan og velgengi einstaklingsins.  Á námskeiðinu verður fjallað um hvaða leiðir eru færar til að bæta sjálfstraust og sjálfsmat.  Áhersla er á samskipti, tilfinningar og markmiðasetningu. Þá er þátttakendum boðið að rýna í eigin gagnrýnanda, gömul sár og á hvaða hátt álit annarra er áhrifavaldur í lífi þeirra. Óheilbrigt sjálfsmat og skert sjálfstraust geta valdið vanmetakennd, kvíða, sektarkennd og erfiðum varnarviðbrögðum.

 

Markmið námskeiðsins er að gefa þátttakendum verkfæri til þess að efla sjálfstraust sitt og sjá sjálfsvirði sitt í nýju ljósi. Þar með opnast leiðir til bættra samskipta, aukinnar vellíðunar og betri lífskjara.

 

Fyrirkomulag námskeiðsins:

Sjálfstyrkinganámskeiðin fara fram í 8-12 manna hópum, með því móti að hver hópur hittist í tvö skipti ca. 4.klst. í senn.  Þátttakendur fá námskeiðsgögn og gætu þurft að vinna heimavinnu. Auk þess er eftirfylgni í því formi að hópurinn hittist í ca. 1,5.klst. vikulega í tvær vikur. Leiðbeinendandi er Fritz Már.

Sjálfstyrkingarnámskeiðið hefst 28.03 2014 en námskeiðið er föstudagana 28.03 og 11.04 kl. 16:30-20:30 og eftirfylgnin er miðvikudagana 23. og 30.04 kl. 20:00-21:00

Verð á námskeiði:

Verð námskeiðs er kr. 13.900.- Til að skrá sig eða fá frekari upplýsingar má hafa samband í síma 783-4321 eða namskeiðin@gmail.com

 

Hjóna og paranámskeið

Þetta námskeið miðar að því að efla samband hjóna og para. Áherslan verður á samskipti og nánd. Hvernig er hægt að styrkja það sem gott er og vinna með það sem miður er. Öll sambönd fara í gegnum sveiflur, tíma þar sem ástin ríkir og allt er létt og skemmtilegt. Þá er parið ósigrandi en svo koma tímar þar sem ástin virðist fjarlæg, ágreiningsefnin safnast upp og parið upplifir skerta nánd. Til þess að geta átt í góðu sambandi þarf einstaklingurinn að setja bæði sér og maka sínum heilbrigð mörk. Í hverju parasambandi eru tveir ólíkir einstaklingar sem hafa tamið sér mismunandi samskiptahætti. Því teljum við mikilvægt að rýna í ástartungumálið. Á hvaða hátt tjáir parið þarfir sínar, þrár og langanir og á hvaða hátt mæta þau hvert öðru. Þetta og fleira til verður skoðað með verkefnavinnu, hópvinnu og fræðslu. Höfuðáhersla námskeiðsins er að aðstoða hjón og pör við að styrkja samband sitt og leggja til aðferðir sem eru líklegar til að viðhalda trausti og vellíðan í sambandinu.

Fyrirkomulag námskeiðsins:

Para og hjónanámskeiðin fara fram í 4-5 para hópi. Hópurinn hittist í tvö skipti ca. 5.klst. í senn með viku millibili. Auk þess fá þátttakendur 1,5-2 klst í eftirfylgni  í 2 vikur, samtals er um að ræða 4 skipti. Þátttakendur vinna verkefni í vikunni á milli tímanna.  Leiðbeinendur eru Díana Ósk og Fritz Már.

Hjóna og paranámskeið hefst 21.03 2014 en námskeiðið er föstudagana 21.03 og 04.04 kl. 16:30-20:30 og eftirfylgnin er miðvikudagana 09. og 16.04 kl. 20:00-21:30/22:00

Verð á námskeiði:

Verð námskeiðs er kr. 29.900.- fyrir par. Til að skrá sig eða fá frekari upplýsingar má hafa samband í síma 783-4321 eða namskeiðin@gmail.com

 

 

Hugleiðslunámskeið

Öll höfum við þörf fyrir hvíld, fyrir stund þar sem við dveljum í núinu og leyfum okkur að endurnærast. Hvort sem við gefum okkur tíma fyrir hugleiðslu að morgni, að kveldi, um miðjan dag eða nokkrum sinnum yfir daginn þá finnum við flest að tíminn sem við gefum okkur til þess að róa hugann, hlusta á andadráttinn og dvelja með sjálfum okkur er bæði nærandi, stillandi og orkugefandi. Á þessum námskeiðum munum við tengja saman hugleiðslu og trú. En því er oft haldið fram að þegar við eigum í sambandi við Guð þá séum við að tjá okkur með bæninni og að hlusta í hugleiðslunni. Í upphafi hvers tíma og í lok hvers tíma er farið með stutta bæn.

Fyrirkomulag námskeiðsins:

Hugleiðslunámskeiðin okkar eru mismunandi en öll standa þau yfir í fjögur skipti, klukkustund á viku í fjórar vikur. Leiðbeinendur eru ýmist Fritz Már eða Díana Ósk.

Hugleiðslunámskeiðin hefjast 25.03 kl. 20:00

Verð á námskeiði:

Verð námskeiðs er kr. 5.000. Til að skrá sig eða fá frekari upplýsingar má hafa samband í síma 783-4321 eða namskeiðin@gmail.com