4433_85412083761_3403987_n[1]

Mikil gleði verður í Árbæjarkirkju á æskulýðsdaginn

Æskulýðsguðsþjónusta kl.11.

Sunnudaginnn 2. mars er Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar. Börn úr 7-9 ára starfinu dansa Tófudansinn. Þórdís Petra Ólafsdóttir flytur atriði Ársels úr SAMFÉS keppninni.  Unglingar úr æskulýðsfélaginu saKÚL syngja. Fulltrúar úr TTT starfinu: Jóna María Hjartardóttir, Signý Lára Bjarnadóttir og Phoebe Jaria lesa ritningarlestra.

Brúðuleikhús, söngur og mikil gleði.  Ingunn djákni, sr. Sigrún, Valbjörn og Kjartan leiða stundina. Boðið upp á kaffi og safa að lokinni guðþjónustu.

Hjartanlega velkomin!