Á sunnudaginn verður notaleg stund í kirkjunni kl. 11. Við höfum guðsþjónustu með einföldu sniði, hlýðum á guðspjall dagsins og hugleiðingu úr frá því, syngjum sumarlega sálma og biðjum saman. Sr. Sigrún og Krisztina organisti leiða stundina. Félagar úr kirkjukórnum leiða söng. Sverrir kirkjuvörður býður upp á kaffisopa að stundinni liðinni. Verið hjartanlega velkomin í Árbæjarkirkju á sunnudaginn.