TTT-starfið í Vindáshlíð dagana 15. -16.mars

TTT-mót verður haldið í Vindáshlíð um næstu helgi

Það er mikil spenningur í börnunum í 10-12 ára starfinu því TTT-mót ÆSKÞ verður haldið í Vindáshlíð í Kjós dagana næstu helgi. Yfirskrift mótsins í ár er Með gleði og fögnuð í hjarta. TTT- starfið hefur að undanförnu staðið fyrir fjáröflun til að draga úr kostnaði við mótið.

Dagskráin er sambland af fræðslu, leik og helgihaldi eins og hefðir gera ráð fyrir og verður þema mótsins tvinnað inn í dagskrána. Lagt verður af stað frá Árbæjarkirkju kl. 17 föstudaginn 15. mars og komið til baka um miðjan dag á laugardag.