Helga í Árbæjarblómum mun heimsækja foreldramorgna dagana 20. og 21. nóvember og kenna aðventuskreytingagerð úr því sem til er á heimilinu. Foreldramorgnar eru á tveimur stöðum í sókninni, safnaðarheimili Árbæjarkirkju á þriðjudagsmorgnum og ,,Mesthúsinu" Norðlingahverfi á miðvikudagsmorgnum. Allir foreldrar eru velkomnir.