Vorferð Árbæjarkirkju sunnudaginn 15. maí

Fyrirhugað er að fara í heimsókn í Vatnsholt sjá nánar http://www.stayiniceland.is "Fallegt uppgert sveitabýli í aðeins 16 km fjarlægð frá Selfossi. Eitt víðasta útsýni í byggð á landinu. Reiðhjólaleiga á
staðnum og hægt er að leigja árabát og veiðistangir á Villingaholtsvatni. Leiksvæði með veglegum útileiktækjum fyrir börnin. Fjöldi dýra er á staðnum."

Lagt verður af stað með rútu frá Árbæjarkirkju kl.10.00 árdegis. Rútferðin er í boði Árbæjarkirkju. Staðarhaldarar á Vatnsholti bjóða upp á súpu og brauð í hádeginu-kaffi og upprúllaðar pönnukökur á eftir. Kostnaður á mann kr.1000

Þau sem vilja geta leigt bát og eða rennt fyrir fisk á staðnum. Þannig að gott er að hafa lausafé eða greiðslukort.

Þessi ferð hugsuð fyrir alla aldurshópa frá aldrinum 0-100 ára.

Vinsamlegast látið vita um þátttöku í síma 5872405 eða á thor@arbaejarkirkja.is  fyrir hádegi föstudaginn 13. maí.