Fjölskylduguðsþjónusta kl.11.00. Margrét Ólöf og sr. Þór Hauksson sjá um stundina. Barn borið til skírnar. Söngur, sögustund, fróðleikur og skemmtilegheit. Ungir sem aldnir saman í kirkjunni sinni.

Samfélag og kaffisopi á eftir í safnaðarheimilinu.

Þraukararungmenni í æskulýðsstarfi Árbæjarkirkju verða með kökubasar og harðfisksölu.  Söfnun fyrir ferð þeirra á Landsmót Æskulýðsfélaga núna í október.   

Láttu sjá þig!  Það verður vel tekið á móti þér og þínum!