Um næstu helgi 18. júlí er komið að árlegri sameiginlegri messu nágrannasóknanna þriggja, Árbæjar, Grafarholts og Grafarvogs. Messan er haldin á Nónholti innst í Grafarvoginum enda Nónholtið á mörkum sóknanna þriggja. Nónholt er fallegur skógarlundur stutt frá sjúkrahúsinu Vogi. Hægt er að keyra langleiðina upp að lundinum eftir malarveginum hjá Vogi en einnig verður farin pílagrímsferð úr kirkjunum þremur í lundinn. Lagt verður af stað frá Árbæjarkirkju kl. 10 fyrir þau sem vilja ganga til kirkju. Sjá nánar á meðfylgjandi korti frá ja.is merkt A. Prestar Guðríðarkirkju séra Sigríður Guðmarsdóttir og séra Karl V. Matthíasson þjóna og kór Guðríðarkirkju sér um forsönginn. Sungnir verða léttir og skemmtilegir sálmar, söfnuðir mætast og almættið lofað í sköpunarverkinu miðju. Og svo verður eitthvað í svanginn líka, grillað og fínt, fínt