Sunnudagur 6. desember annar sunnudagur í aðventu
Sunnudagaskólinn kl.11.00 og guðsþjónusta. Gospelkór Árbæjarkirkju syngur jólasöngva. Kórstjóri María Magnúsdóttur.

AÐVENTUKVÖLD kl.20.00
Að venju verður vönduð dagskrá í tali og tónum. Meðal annarra listamanna koma fram: Matthias Nardeau, flautuleikari og Guðrún Birgirsdóttir flautuleikari.
Kirkjukór Árbæjarkirkju og Barnakór kirkjunnar syngja. Fermingarbörn sýna helgileik. Ræðumaður kvöldsins: dr. Hjalti Hugason guðfræðiprófessor guðfræðideild HÍ.
Endað verður í kirkjunni á tendrun ljósa. Samsöngur “Heims um ból.” Rjúkandi heitt súkkulaði og piparkökur í safnaðarheimilinu í boði sóknarnefndar.