Það var gaman að sjá umfjöllun um öldurnarstarfið í Árbæjarkirkju á vef prófastdæmisins.  www.kirkjan.is/eystra

Öflugt og lifandi starf eldri borgara í Árbæjarkirkju
Það var gaman að koma á opið hús eldri borg- ara í Árbæjarkirkju. Það var svo mikil gleði og kraftur í öllum, að vefarinn verður bara að vona að hann nái að verða löggildur eldri borgari, því það er engin spurning, að í svona glöðum hópi vill hann vera.

Þeir sem ekki voru að föndra stóðu við pían- óið og sungu af hjartans list – og þeir sem voru að föndra sungu auðvitað með líka og "berg- málar enn". Stelpurnar voru í miklum meiri- hluta eða svona 99%, en það kom ekki að sök, því þær létu skátaforingjann syngja með.

Vefarinn sendir sínar bestu kveðjur í Árbæjar- kirkju um leið og hann birtir þessar svipmyndir (sjá á vefnum www.kirkjan.is/eystra)

af opnu húsi þeirra, en síðasta myndin sýnir væntanlega viðbyggingu við safnaðarheimilið, sem mun örugglega efla enn frekar hið frá- bæra starf sem þarna er unnið hjá kirkjunni.