Guðsþjónusta kl.11.00. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng.  sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari.  Pétur Markan guðfræðinemi og æskulýðsleiðtogi við kirkjuna prédikar.  Krisztina Kalló Szklenár organisti. Sverrir Sveinsson leikur á cornett.  Fundur með foreldrum fermingarbarna strax á eftir guðsþjónustunni. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar. Kirkjukaffi á eftir.

Ath! Stuttur foreldrafundur verður strax eftir guðsþjónustuna.  Farið verður yfir tilhögun fermingarathafnarinnar og ýmislegt fleira sem snýr að sjálfri fermingunni!  Foreldrar/forráðamenn eru vinsamlegast beðnir um að skoða nafnalista ferminga hér á síðunni og aðgæta að nafn og heimilsfang, fermingardagur og tímasetning sé rétt.  Frá og með hádegi mánudagsins 25. febrúar er ekki hægt að koma á framfæri leiðréttingum til morgunblaðsins.  Nöfn fermingarbarna verða birt í heild sinni í sérstökum fermingarblaði sem gefið verður út í byrjum mars.  Þannig enn og aftur vinsamlegast aðgætið hvort hvort nöfn og heimilisföng séu rétt!