Sunnudaginn 9. desember er jólastund sunnudagaskólans og Fylkis í Árbæjarkirkju.  Stundin hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl.11.00.  Leikhópurinn Perlan sýnir helgileik um fæðingu frelsarans.   Tendrað verður á öðru kerti aðventukransins.  Jólasaga lesin og jólalög sungin.  Eftir stundina í kirkjunni er farið í safnaðarheimilið og slegið upp jólaballi.  Þar verður dansað í kringum jólatréð.  Kátir sveinar úr næsta nágrenni heimsækja okkur með góðgæti í poka handa góðum börnum.