Uppstigningadag 17. maí á degi aldraðra er hátíðarguðsþjónusta kl.14.00.   Dagurinn er í hávegum hafður í Árbæjarkirkju.   Karlakórinn Stefnir syngur í guðsþjónustunni ásamt hluta af kirkjukórnum.   Fyrir altari þjónar sr. Þór Hauksson og prédikar.  Krisztina Kalló Szklenár organisti leiðir almennan safnaðarsöng.  Handavinnusýning Opna hússins – félagsstarf aldraðra í Árbæjarkirkju.   Hátíðarkaffi er í boði Soroptimistakúbbs Árbæjar í safnaðarheimili kirkjunnar eftir guðsþjónustuna.    Kórfélagar Stefnis flytja nokkur létt lög. 

Minnum á safnaðarferðina í Þórsmörk sunnudaginn 20. maí kl.9.00 árdegis!