Tónlistarskóli Árbæjar efnir til minningartónleika um Ólaf Sverri Sölvason nemanda við skólann sem lést á síðastliðnu ári aðeins 13 ára gamall. Tónleikarnir fara fram í Árbæjarkirkju fimmtudaginn 1. mars kl. 20.00. Fjöldi hljómsveita innan tónlistarskólans sem utan mun koma fram auk einleikara og söngvara úr fjölskyldu Ólafs.