Það er okkur í Árbæjarkirkju sönn ánægja að opna nýja heimasíðu.  Sú gamla hefur legið niðri um langt skeið og valdið okkur heilmiklum búsifjum þar sem nútíminn krefst þess að hægt sé að koma á framfæri efni og skilaboðum á sem hagkvæmasta hátt. 

Næstu daga munu fréttir og myndir og ýmislegt annað birtast á vefnum okkar.   Meðal nýjunga eru kannarnir sem munu birtast reglulega eins og sú sem er hér til vinstri á síðunni. 

Fljótlega munum við sýna beint á vefnum frá guðsþjónustum og atburðum í kirkjunni sem okkur þykir vert að sem flestir geti séð og heyrt.  Við þökkum þolinmæðina.