Guðsþjónusta kl. 11:00. Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts kemur í heimsókn og leikur nokkur lög. Stjórnandi þeirra er Snorri Heimisson. Elín Bryndís Snorradóttir nemandi í Söngskóla Reykjavíkur syngur einsöng. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló Szkláner organista. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Önnu Sigríðar Helgadóttur og Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Kaffi og spjall eftir stundina.