Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00 þar sem fermingarbörn taka virkan þátt með söng, upplestri, leiklist og í myndlist. Sr. Þór Hauksson, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og Ingunn Björk Jónsdóttir djákni ásamt Jakobi Viðari Sævarssyni leiða stundina. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló Szkláner.

Á eftir er foreldrafundur fyrir foreldra fermingarbarna þar sem rætt verður um fermingarstarf vetrarins.