Messa kl. 11:00. Gídeonfélagar koma í heimsókn og kynna starfið sitt. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló Szklaner organista. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Önnu Sigríðar Helgadóttur og Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Messukaffi og spjall eftir stundina.