Taizé-messa kl.11:00. Biblíuvers sungin, altarisganga og áhersla á kyrrð og íhugun. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju leiðir sönginn undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár organista. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Önnu Sigríðar Helgadóttur og Benjamíns Gísla Einarssonar.