Æskulýðsguðsþjónusta í Árbæjarkirkju kl. 11:00. Börn úr barnastarfinu syngja og lesa ritningarlestra. Börn úr 10-12 ára starfinu sýna leikþátt. Félagar úr æskulýðsfélaginu saKÚL taka þátt í guðsþjónustunni. Emma Eyþórsdóttir, vinningshafi Ársels í söngvakeppni SAMFÉS, syngur. Brúðurnar Rebbi og Mýsla líta inn í heimsókn. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, Ingunn Björk Jónsdóttir, Anna Sigríður Helgadóttir og Ingibjörg Hrönn Jónsdóttir þjóna. Benjamin Gísli Einarsson leikur á flygilinn. Kirkjukaffi að lokinni guðsþjónustu.