Fjölskylduguðsþjónusta í Árbæjarkirkju sunnudaginn 17. desember kl. 11:00. Prestur sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir ásamt Ingunni Björk Jónsdóttur, djákna. Tendrað verður á hirðakertinu. Að lokinni fjölskylduguðsþjónustunni verður sameiginlegt jólaball Árbæjarkirkju og Fylkis í safnaðarheimili kirkjunnar. Jólasveinarnir líta inn með glaðning fyrir yngstu kynslóðina. Öll börn velkomin