Útiguðsþjónusta samstarfssvæðis Grafarvogs, Árbæjar og Grafarholtssafnaða verður haldin á Nónholti sunnudaginn 16. júlí kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Gengið verður frá Árbæjarkirkju kl. 10:30. Fyrir þau sem vilja koma akandi að Nónholti þá er best að fara niður hjá meðferðarstöðinni Vogi og ganga stuttan spöl þaðan. Fötluðum verður veitt aðstoð við að komast á staðinn.

Að guðsþjónustu lokinni verða veitingar í boði.

Velkomin öll